22.1.2009 | 13:04
Pössum okkur, kannski áróður
Nú er ég ekki að fullyrða neitt. Hef ekki séð fyrrnefnd blogg og veit ekkert um þessa einstaklinga sem birt hafa nöfnin. Þannig að þetta er bara innslag inn í umræðuna ekki neitt sem undirritaður heldur staðfastlega fram. En ég spyr mig:
Hvaðan hafa mótmælendur fengið þessi nöfn og heimilsföng? Er þetta svona auðvelt. Þetta kemur mjög illa út fyrir mótmælendur og þeirra málstað, það vita allir með eina heilasellu á milli eyrnanna.
Mjög þekkt erlendis, bæði evrópu og Bandaríkjunum, að lögreglumenn blandi sér í hóp mótmælanda og hafa þar sig mest frammi. Þekkt dæmi er myndband sem sýnir hóp ítalskra lögreglumanna þramma út úr lögreglustöð, dulbúna sem mótmælendur. Til eru mun fleirri myndbönd, vitnisburðir og dómsmál þar sem samskonar mál hafa verið tekin fyrir.
Hefur íslenska lögreglan sýnt af sér betri vinnubrögð. Hvað með hleranir sem hafa tíðkast hér á landi en ávalt er neitað?
Getur það verið að lögreglumaður, eða einstaklingur sem vinnur fyrir lögregluna, starfi með mótmælendum og kemur með hugmyndina um nafnbirtingar og hótanir. Þetta lítur alla vega mjög illa út og lögreglann fær greinilega og skiljanlega mjög mikla samúð.
Þetta er ekki samsæriskenning eða fullyrðing þetta er bara innslag byggt á þekktum dæmum af starfsaðferðum lögreglunnar í löndum sem við berum okkur saman við. Höfum því varann á.
Ef svo sé ekki þá á svona blogg ekki að líðast. Lögreglan er að sinna mjög erfiðu og illa launuðu starfi og tekur aðeins við skipunum frá stjórnvöldum. Þeir eiga þakkir fyrir margt starf sitt og vanhæfni stjórnvalda og annara yfirboðara á ekki að bitna á þeim og þeirra fjölskyldu.
ps: Nú hef ég fengið þær fréttir að eftirfarandi blogg er http://www.ringulreid.org/. Einhver krakki hefur tekið að sér að birta heimilsfang eins lögreglumannsins. Þetta er ekki skipulagt og ekki hægt að tengja þetta við mótmælendur sem heild. Gott áróðurbragð eða öllu heldur útúrsnúningur hjá lögreglunni og Mbl.is.
Nafnbirtingin grafalvarlegt mál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:44 | Facebook
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
slóðin er hér: http://www.ringulreid.org/
ooo (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 13:27
Þetta er nú bara brandari. Einhverjir heimskir skólakrakkar að leika sér. Ráðlegg engum að fara þarna inn.
Er þetta virkilega það sem löggan er að bera fyrir sig?
Torfi Kristján Stefánsson, 22.1.2009 kl. 13:31
Nöfnin voru birt engu að síður, ef eitthvað er finnst mér mbl standa með mótmælendum frekar en lögreglu.
Blahh (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 13:56
Einn þráður með einu nafni postað á nafnlausa spjallsíðu
Alexander Kristófer Gústafsson, 22.1.2009 kl. 15:29
Þetta er komið út í algjört rugl! Mér finnst að þeir sem skipulögðu mótmælin í upphafi -komu boltanum af stað - hætti nú að gorta af sjálfum sér og fari að reyna að koma vitinum fyrir félaga sína! Þetta eru óeirðir en ekki mótmæli, ofsóknir og skemmdarverk og EKKERT - EKKERT afsakar svona hótanir eða svona ofbeldi eins og hefur átt sér stað undanfarna daga af hendi mótmælenda. Nú er komið nóg!
solla (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 15:53
Síðan sem heimilisföngin birtust á er íslensk útgáfa af síðunni svokölluðum random-hluta síðunnar 4chan.org, sem almennt er talin vera ígildi endaþarms internetsins. Þar er mest áberandi svokallaður sjokk-húmor og allir að reyna toppa hvern annan í sjokkeringum og viðbjóði. Sjón er sögu ríkari (varúð!) http://img.4chan.org/b/imgboard.html
Að dæma mótmælin eftir þessari ringulreid.org síðu er bara rugl, þetta eru bara krakkar og þeir virðast ekki hafa aðhafst neitt heldur. Hvort þetta er áróður eða lélegur fréttaflutningur er erfitt að segja.
Össur I. J. (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 21:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.